r/Iceland•
2E3

Spurningar um ost, Hveravelli og orðið fyrir Wienerbrauð sem er bakað í bakaríið

Sæl(l),

Ég er með fjórum spurningar:

  1. Afhverju er skorin ostur alltaf svo "fast". Það er ömurlegt að bara taka einn sneið og þær rifna alltaf. Sérstaklaga "Íslenskur góðostur". Þetta er ekkert mál heima í Noregi.

  2. Hvernig er veðrið vennulegt á leiðinni frá Hveravöll til Hvitánes? (Hvítaness í eignarfall?) Þarf ég að vera með tjald eða er nógu að panta husneyði hjá FFI? EDIT: Oops, forgot to mention that I am quite used to hiking and trekking in Northern Norway in winter and summer so I am not to worried about the cold/snow/wind; just whether if I need to bring a tent for backup or not. (Didn't bother to spend 5 minutes writing the edit in Icelandic..)

  3. Hvað er orðið fyrir eitthvatt sem bakaríinu hef bakað sjálfur? Ég hélt að það var sérbakað en orðabókinni hún segji að það þyðir "Porsjonsbakt" á norsku..

  4. Er í alvoru muninn á "one -baker-" og "one bakery" bara "bakari" og "bakarí"?

Takk fyrir.

PS: Afsakið fyrir allar ritvillur, er að læra íslensku!

Posted Jul 16, 2013, 6:05 PM UTC · edited

68
Fleebix•
  1. Íslenskur ostur er drasl. Ég veit ekki hvers vegna. Norskur ostur er líka heimsins bestur, svo það er erfitt að keppa við hann. Ef þú þværð ekki ostaskerann milli notkunnar þá er aðeins auðveldara að skera.
  2. Ekki hugmynd?
  3. Ég held að það sé ekki til orð yfir þetta. Ég spyr bara "Er þetta bakað hérna?" Getur líka spurt, "Er þetta bakað upp úr einhverju innfluttu frosnu drasli frá Myllunni?"
  4. Jább. Bakarí er dönsku sletta (Bageri), en Bakari er dregið af "Sá sem bakar".

ps. Flott!

2
KFJ943•

Aldrei smakkað Norskan ost, en ég fíla Íslenska ostinn.

Get ég keypt norskan ost einhversstaðar? Allt í einu langar mig að prófa erlendan ost og ég veit ekki afhverju.

1
Fleebix•

Norskur geitaostur er til í flestum búðum, hann er eins og minna runny mysingur. Ég fíla hann en sumum finnst hann ekki góður. Ostabúðin gæti lumað á einhverju, en annars fékk ég bara svo góðan ost í Bergen. Á móti kemur að norskur bjór er algjört drasl, en við eigum ekkert í ostinn þeirra :'(

1
Argit•
  1. Hvernig ost ertu að kaupa? Hversu mörg % hann er skiptir miklu máli um hversu auðvelt er að skera hann, og líka hvaða tegund af osti þú kaupir. Prófaðu eitthvað nýtt.
    Ertu kannski búin(n) að vera að kaupa skorinn ost? Þá skiptir máli hvort þú ert að fletta honum í sundur beint úr ísskápnum eða hvort hann hefur staðið í smá stund við stofuhita.

  2. Ég held að þú eigir alveg að vera í lagi yfir sumartímann. Gæti orðið kalt samt, bara spurning hvað þú treystir þér til að labba lengi í köldu regni og vindi.

  3. Sérbakað þýðir í raun eitthvað sem er "specially baked for you" eða "specially baked for some occasion" etc. Ég held þú verðir bara að spurja um hvort að bakkelsið sé bakað á staðnum.

  4. Já, en það heyrist samt alveg munur þegar þú segir orðið :)

Íslenskan er flott hjá þér! Ég er ánægð með þig að læra íslensku, er sjálf að reyna að pikka upp norsku almennilega. Get nú varla kallað þetta norsku samt.. meira svona "skandinavísku".

2
karirafn•

Varðandi ostinn: Til að forðast að hann rifni þá er gott að taka tvær sneiðar saman úr pakkanum og taka þær svo í sundur.

2
J334•

Bakarinn bakar í bakaríinu.

Veit ekki hvað þú meinar með 'fast' þannig ég get lítið hjálpað þér þar. Persónulega elska ég íslenska ostinn.

Hef heldur ekki hugmynd um hvað ffi er en ég veit að ef ég ættlaði að ganga á milli bæja þá myndi ég taka tjald með. Bara svona til öryggis.

Veðrið hefur verið frekkar leiðrilegt í sumar þannig að vertu tilbúinn fyrir rigningu.

1
magicbicycle•

FFÍ = Ferðafélag Íslands

1
Gangleri•
  1. ég hef ekki hugmynd
  2. ef þú ert með bókað pláss er engin þörf á tjaldi, ertu með áhyggjur af að komast ekki á leiðarenda?
  3. ef það var ekki bakað í bakaríinu hvar var það þá bakað?
  4. já
1