Hvar tilkynni ég öryggisbrest?
Ég fann aðgengi að upplýsingum hjá spítala á höfuðborgarsvæðinu sem ætti ekki að vera opið óviðkomandi en er það.
Þar eru niðurstöður sem tengjast starfi einstakra starfsmanna og starfsemi deilda.
Einnig eru skilaboð á milli starfsfólks aðgengileg, það er jafnvel hægt að senda skilaboð í nafni starfsmanna.
Ekki er um upplýsingar sjúklinga að ræða.
Hvað þarf ég að hafa í huga þegar ég rekst á svona öryggisbrest, bæði hvað mig sem tilkynnanda varðar og stofnunina sem um ræðir?
Posted Jun 2, 2026, 1:06 PM UTC
3424