r/Iceland•
numix90

Við erum enn að rífast um hægri og vinstri út af frönsku byltingunni fyrir 235 árum

Ok þetta er ekki beint tengt islenskri umræðu eða eitthvað sem tengist fréttum liðandi stundar, og eflaust upplysingar sem engin bað um en eg var í dag gamall þegar ég fattaði að stjórnmálahugtökin hægri og vinstri, sem við notum á hverjum degi og rifumst um daglega og skiptum okkur upp í fylkingar með, eiga uppruna sinn að rekja til sætaskipunar á franska þjóðþinginu árið 1789 rétt áður en franska byltingin hófst.
ss, vinstra megin við forseta þingsins sátu þau sem vildu róttækari breytingar, meira lýðræði, mannréttindi, takmarka valdið til konungsins, en svo, hægra meginn sátu þau sem vildu vernda hefðirnar, óbreytt ástand og styðja við vald konungs og kirkju. Þannig að i upphafi var þetta bókstaflega bara spurning um í hvorn helming salarins menn gengu þegar þeir mættu á fund
og svo er lika ahugavert að pæla í því að þetta snerist í upphafi ekkert um hagfræði eða skatta eins og í dag, heldur bara hversu mikið veldi kóngurinn ætti að hafa. En ofc hafa hugtökin breyst gríðarlega á síðustu rúmum 200 árum

Posted Aug 12, 2026, 10:47 AM UTC

219
Loading comments…