r/Iceland•
aztec2step

ELI5: SDG og Wintris o.s.frv

Tel mig vera þokkalega vel að mér í þessu máli, en var að vona hvort að einhver sniguður hér gæti súmmerað þetta mál upp frá byrjun á tiltölulega einfaldan máta?

Posted Apr 4, 2016, 6:54 PM UTC

35
busmoswagÍslendingur•

Eftir minni bestu getu.

Eiginkona Sigmundar Davíðs fékk gríðarstóran arð greiddan til sín á góðæristímabilinu sem gerði hana m.a. að yngsta milljarðamæringi Reykjavíkur. Hún ákvað að láta Landsbankann í Lúxemborg setja upp aflandsfélag til að halda utan um þennan arf á Bresku Jómfrúareyjunni (sem er skilgreint sem skattaskjól á vef fjármálaráðuneytisins). Ástæðan sem hún gaf fyrir valið á þessari staðsetningu var að þau vildu að fjármagnið væri þeim aðgengilegt, þar sem að þau voru búsett í Bretlandi.

Landsbankinn var milliliði í viðskiptum milli þeirra og fyrirtækisins Mossack Fonseca á Panama, en það sér um að setja upp fyrirtæki í skattaskjólum fyrir fólk sem vill ekki skrá nöfnin sín á þau. Prókúruhafar félagsins áttu að vera tveir og var það skýrt tekið fram að þau voru saman eigendur þess. En skráðir eigendur fyrirtækisins í Tortóla voru fjórir Panama-búar sem að Mossack Fonseca borgar fyrir að hylja raunverulega eigendur.

SDG og konan hans áttu semsagt aflandsfélag í skattaskjóli og borguðu fyrir sérstaka þjónustu til þess að hylja eignarhald þeirra á því. Þau halda því fram að eignarhald þeirra hafi alltaf verið tilkynnt skattayfirvöldum, en það er engin leið fyrir skattayfirvöld á Íslandi að komast að því hvort réttar tekjur á því eru gefnar fram.

SDG verður síðan formaður Framsóknar í hruninu og er kosinn á þing vorið 2009. Um haustið samþykkir Alþingi nýjar reglur um hagsmunaskráningu þingmanna og degi áður en sú regla tekur gildi þá selur hann konunni sinni helmings eignarhlut sinn í Wintris (sem nemur að minnsta kosti nokkrum hundruðum milljónum króna) á einn dollara. SDG útskýrir þetta sem svo að bankinn hafi gert mistök þegar hann sagði að þau hjónin ættu að eiga fyrirtækið saman, en ef svo væri hefði bankinn væntanlega þurft að leiðrétta villuna, frekar en að hann þyrfti að selja hlut sem hann raunverulega átti ekki.

Wintris var síðan einn af kröfuhöfunum í föllnu bönkunum þremur og námu þær kröfur hundruðum milljónum króna. Þar sem að Sigmundur Davíð sá um viðræður um losun gjaldeyrishafta þar sem að fram fóru viðræður við kröfuhafa bankanna vilja margir meina að hann hafi verið vanhæfur til að sinna slíkum viðræðum, enda beggja megin borðs. Ég er ekki alveg að mér í þessum anga málsins og þess vegna verður einhver að útskýra þetta betur en ég get.

Ég held að stóru málin sem fólk reiðist yfir séu (algjörlega hlutdræg ályktun):

  • Sigmundur Davíð græddi á hruninu - eignir hans voru í erlendum gjaldeyri og þess vegna varð hann margfalt ríkari þegar gengi íslensku krónunna hrapaði.

  • Sigmundur Davíð rekur ídeológíska einangrunarstefnu í peningamálum - gerir það sem hann getur til að vernda íslensku krónuna og stöðvar aðgang Íslendinga að sömu kjörum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hann nýtur. Af því að fé hans er í erlendri mynt þá má segja að hann græði á því þegar íslenska krónan er veik. Síðan getur hann líka nálgast óverðtryggð lán og hagstæð vaxtakjör sem Íslendingar fá ekki að njóta út af peningastefnunni sem hann rekur í landinu.

  • Hann gæti hafa skotið fé undan skatti og enginn myndi vita það. Hann og konan hans eru raunverulega þau einu sem vita hvað er í þessum reikningi, skattrannsóknarstjóri hefur ekki aðgang að upplýsingum um reikningana hans. Hann vill meina að hann hafi ekki framið skattsvik, en hann vildi líka meina að hann hafi aldrei átt fé í aflandsfélagi og það reyndist lygi.

edit: lagaði stafsetningarvillu

2
borkur•

Kannski finnst fólki ekki að það skipti máli en SDG tók fram í viðtali á Vísi að félagið hafi verið verðlaust og skýrir það þannig að konan hans hafi lagt inn pening í félagið og fengið kröfu á móti. Þannig að konan hans á 100% af fjármagninu...

1
aronfemaleálfur•
1
aztec2stepOP•

Ekki bókstaflega ELI5, og kannski á íslensku en maður lætur sér þetta kannski bara nægja

1
DTATDM•

Póstaði þessu á r/worldnews. Þetta kafar ekkert of djúpt í þetta og þarna þar sem ég segi mína skoðun er þetta augljóslega mín, hlutdræga skoðun.

https://www.reddit.com/r/worldnews/comments/4dawuo/iceland_pm_i_will_not_resign/d1pilxw

1