
possiblyperhaps
u/possiblyperhaps

Ísland er lang-friðsælasta landið í heiminum, 19. árið í röð 🇮🇸
economicsandpeace.org/wp-content/uploads/2026...Íslendingar athugið: Alþingi samþykkti með öllum greiddum atkvæðum að heimilt sé að flagga íslenska fánanum allan sólarhringinn 🇮🇸 🇮🇸 🇮🇸
althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-...
althingi.is
Gleðilegt nýtt ár kæru landar mínir og kærar þakkir fyrir liðin ár.
Fleira var það ekki.
🇮🇸🇮🇸🇮🇸
Sól gengur hátt á heiðum himni, fuglar syngja á björtum móum og berin brosa í brekkum. En vér megum eigi fara út. Því svo hefir jarðeldur ákveðið, að nú skuli landsmenn sitja inni og dást að sumarsins gæðum gegnum gler.
Þessi gömlu og óútreiknanlegu náttúruöfl, sem jafnan leika sér að móðurjörð með sínum skapsmunum, hafa enn tekið upp á því að blása yfir bygðirnar móðu og sviða ,eins og þeim væri í nöp við ljóma sumarsins og vildu hylja hann með hugarþoku sinni.
Engu að síður skal gleðin ekki deyfa. Hvað er eitt ský af brennisteini á móti þeirri sól sem býr í brjósti íslenskrar þjóðar? Hvergi öðruvísi en áður, berum vér þetta með kankvísu æðruleysi og látum hvorki loft né eldtungu ræna o






